Skúbb, Laugarásvegi 1. Opið virka daga frá 14 - 23. Helgar 12 - 23.

Skilmálar

Velkomin í vefverslun Skúbb sem er í eigu og rekstri Skúbb ehf. kt. 640317-0940. Hér eftir verður notast við „við“, „okkur“ og „okkar“ þegar átt er við Skúbb.


Vinsamlegast lestu skilmálana vandlega áður en þú verslar í vefverslun okkar. Með því að nota vefverslun Skúbb samþykkir þú þessa skilmála.

1. PERSÓNUUPPLÝSINGAR

Við virðum friðhelgi þína og meðhöndlum persónuupplýsingar í samræmi við lög nr. 77/200 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Þegar verslað er í vefverslun þarf að gefa upp nafn, heimilisfang og netfang. Þessar upplýsingar eru eingöngu nýttar til að ganga frá pöntun, en kaupsaga er vistuð áfram á öruggu svæði sem er læst. Athugið að kortanúmer eru aldrei geymd á vefsvæðum okkar og einungis er hægt að sjá tegund greiðslu, ef fletta þarf upp pöntun. Við deilum aldrei persónuupplýsingum með þriðja aðila.

2. VÖRUÁBYRGÐ

Ekki er hægt að skila vörum keyptum í vefverslun Skúbb. Ef óánægja kemur upp með gæði eða nákvæmni upplýsinga um vöru í vefverslun eru viðskiptavinir hvattir til þess að hafa samband. Athugið að taka þarf fram hvað það var sem að óánægja var með og pöntunarnúmer skal sent á netfangið skubb@skubb.is

3. NÁKVÆMNI UPPLÝSINGA

Við kappkostum að hafa réttar lýsingar og vörumyndir í vefverslun okkar. Upp geta komið tilvik þar sem um minniháttar litamun eða umbúðamun getur verið að ræða. Að öðru leyti eru upplýsingar birtar með fyrirvara um innsláttarvillur eða minniháttar uppfærslutafir.

4. VERÐ

Uppgefið verð í vefverslun okkar er í íslenskum krónum. Athugið að verðbreytingar eru ekki auglýstar fyrirfram. Virðisaukaskattur er innifalinn í verði. Afhendingarleið er valin í lok pöntunar sem getur leitt til aukins sendingarkostnaðs.

5. FERILL PANTANA

Þegar þú hefur lokið við að panta í vefverslun færðu tölvupóst með pöntunarnúmeri og kvittun fyrir vörukaupum. Kvittun jafngildir ekki afgreiðslu, við áskiljum okkur rétt til að bakfæra pöntun ef grunur um einhvers konar misferli vaknar. Pantanir sem sækja á verslun verða afgreiddar um leið og þær berast eða um leið og Skúbb opnar næsta dag. Pantanir eru afgreiddar alla virka daga, heimkeyrsla er í boði í Reykjavík og keyrt er heim samdægurs ef pantað er fyrir kl. 21:00 eða eftir kl.21:00 daginn eftir pöntun


6. GREIÐSLULEIÐIR

Eftirfarandi kort er hægt að nota í vefverslun Skúbb:

Visa
Mastercard
American Express
Diners
Maestro

7. GREIÐSLUVANDAMÁL

Ef vandamál vegna greiðslu koma upp eftirá vegna greiðslu (t.d. vákort) áskiljum við okkur rétt til að hafna greiðslunni og hætta við pöntunina.

8. ÖRYGGI VEFSVÆÐIS

Við setjum öryggi viðskiptavina okkar á oddinn. Við notum bestu tækni sem völ er á til að tryggja að allar greiðslur séu öruggar. Undir lok pöntunarinnar flytur síðan þig yfir á https-svæði þar sem þú setur inn kortaupplýsingar.

Hins vegar geta gamlir vafrar verið öryggisógn og því mælum við alltaf með að notendur séu með nýjustu útgáfu af þeim vafra sem þeir kjósa að nota.

Við vistum engar kortaupplýsingar á vefþjónum okkar eða vefsvæðum.

9. SENDINGAR

Við gerum okkar besta til að tryggja þér bestu og skjótvirkustu sendingarleiðir sem völ er á, en sendingartíminn veltur þó alltaf á staðsetningu viðtakanda. Einungis er sent innan höfuðborgarsvæðisins.


10. BREYTINGAR Á PÖNTUN

Pantanir eru afgreiddar á virkum dögum kl. 8-21. Við mælum með því að þú yfirfarir pöntunina vel áður en þú lýkur við hana. Ef þú þarft að breyta pöntun eftirá getur hlotist af því viðbótarkostnaður. Vinsamlegast vísið í pöntunarnúmer ef breyta þarf pöntun og sendið allar fyrirspurnir á skubb@skubb.is.

12. HÖFUNDARÉTTUR

Allt efni í vefverslun, þ.m.t. vörumerki, myndir, texti, ljósmyndir, grafík, hljóð og mynd, er í eigu Skúbb ehf. og er höfundarvarið.

Ekki er heimilt að nota, afrita eða selja efni af síðunni án skriflegs samþykkis okkar.

13. ÁBYRGÐ OG SKULDBINDING

Vefverslun þessi er opin öllum en við erum ekki ábyrg fyrir rangri notkun síðunnar né erum við skuldbundin til að eiga alltaf allar vörutegundir til á lager. Ekki er hægt að skila vörum keyptum á netverslun. Ef viðkomandi er óánægður með vöruna er þeim velkomið að senda okkur email svo hægt sé að finna út úr vandamálinu. Athugið að taka þarf fram hvað það var sem að óánægja var með og pöntunarnúmer skal sent á netfangið skubb@skubb.is

Varnarþing

Rísi réttarágreiningur í tengslum við skilmála þessa skal bera hann undir Héraðsdóm Reykjavíkur.